Staða málaflokks barna og ungmenna sem glíma við flókinn og fjölþættan vanda er komin á alvarlegt neyðarstig. Þrátt fyrir ítrekaðar aðvaranir ýmissa, þar á meðal umboðsmanns barna hefur vandi um 130 barna, sem þarfnast sérhæfðustu þjónustu landsins, fengið að magnast vegna kerfislægs ósamræmis og skorts á pólitískum vilja.
Afleiðingin er sú að foreldrar standa eftir bugaðir og börnin falla í djúpa gjá á milli heilbrigðis-, barnaverndar- og félagsþjónustu. Þetta ástand er ekki tilviljun, heldur bein afleiðing áralangrar vanrækslu sem krefst tafarlausra aðgerða.
Þann 20. nóvember síðastliðinn var alþjóðlegur mannréttindadagur barna. Þetta er dagur sem gjarnan er nýttur til að fagna því að Ísland hafi lögfest Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og til að minna á að Ísland sé eitt besta land í heimi til að búa í. En fyrir þúsundir barna sem búa við skort, ofbeldi og kerfisbundið aðgerðaleysi eru yfirlýsingar sem þessar aðeins holur hljómur. Þessi börn eru skugginn í glansmyndinni.
Þrátt fyrir að Ísland teljist eitt ríkasta samfélag heims er veruleiki fjölda barna allt annar. Þau upplifa daglega að brotið sé á grundvallarréttindum þeirra. Það er ekki nóg að stjórnvöld setji lög á blað því ef þeim er ekki fylgt eftir með markvissum aðgerðum og fjármagni þá líða börnin okkar fyrir það. Krafa dagsins er sú að stjórnvöld hætti að líta undan og horfi í eigin barm þegar kemur að velferð barna.
Að búa börnum sanngjarnan heim
Í hjarta hvers samfélags liggur siðferðileg skylda til að tryggja börnum jöfn tækifæri. Ekki fæðast öll börn með sömu spil á hendi, en það er hlutverk samfélagsins að búa svo um hnútana að uppruni, efnahagur eða félagsleg staða ráði ekki för um framtíð barnsins.
Ísland telur sig vera réttlátt og þróað samfélag. En raunveruleikinn sýnir að fjöldi barna hér á landi býr við fátækt og félagslegan skort sem dregur úr tækifærum þeirra til að þroskast og dafna í gegnum nám og leik. Þessi börn eru ekki bara tölur í skýrslum – þetta eru raunveruleg börn, með drauma, þrár og vonir sem þurfa skjól og stuðning til að dafna.