Hugleiðingar um málefni líðandi stundar
Samfélagsrýni er vettvangur fyrir greinar og hugleiðingar Friðþjófs Helga Karlsson, fv. skólastjóra og bæjarfulltrúa. Hér eru skoðaðar stórar og smáar spurningar samfélagsins: menntamál, velferð, sveitarstjórn, húsnæði, lýðræði, íþróttir og samheldni. Markmiðið er að bjóða upp á gagnrýna, lausnamiðaða umræðu sem byggir á reynslu af skólastarfi, stjórnsýslu og samfélagsþátttöku. Lesendur fá skýra greiningu, gagnsæ gögn og nothæfar hugmyndir sem kveikja samtal og aðgerð. Samfélagsrýni leggur áherslu á virðingu, vönduð skrif, aðgengi og skýrleika. Hér eru engar flugeldasýningar – aðeins rök, ábyrgð og umhyggja fyrir fólki. Taktu þátt í samtalinu: deildu, mótmæltu, spyrðu og hjálpaðu til við að bæta samfélagið í sameiningu.
Hver er ég?
Friðþjófur Helgi er uppeldis- og menntunarfræðingur (M.Ed., B.Ed). með áratuga reynslu sem kennari og skólastjórnandi á grunnskólastigi.
Friðþjófur er með sérhæfingu í stjórnun breytinga og innleiðingu þeirra. Hann hefur einnig sótt sér menntun í fræðum faglegrar verkefnastjórnunar.
Hann hefur komið að fjölmörgum verkefnum er lúta að stefnumörkun í mennta- og samfélagsmálum.
Friðþjófur Helgi hefur mikla reynslu á sviði stjórnunar og innleiðingu breytinga sem stjórnandi í grunnskólum síðustu 25 ár, lengst af sem skólastjóri. Hann hefur einnig víðtæka þekkingu á sveitarstjórnarmálum sem varabæjarfulltrúi og síðar bæjarfulltrúi í Hafnarfirði á árunum 2014 - 2022 og öðlast með því víðtæka þekkingu á sveitarstjórnarmálum. Sú þátttaka ásamt langri reynslu af stjórnun hjá hinu opinbera hefur veitt honum mikilvæga innsýn í störf á flestum sviðum stjórnsýslunnar.
Friðþjófur Helgi hefur veitt forystu fjölmörgum nýsköpunarverkefnum á sviði skóla- og samfélagsmála síðustu áratugi og stuðlað að farsælli innleiðingu þeirra breytinga sem í þeim fólust.
Friðþjófur Helgi er 53 ára fjölskyldumaður búsettur í Reykjanesbæ. Hann á þrjú börn og þrjú stjúpbörn ásamt fjórum afabörnum. Eiginkona hans er Laufey Bjarnadóttir, uppeldis- og fjölskyldufræðingur.