Menntamál Friðþjófur Helgi Karlsson Menntamál Friðþjófur Helgi Karlsson

Skóli án aðgreiningar: Fögur fyrirheit á brauðfótum veruleikans

Hugsjónin um skóla án aðgreiningar, sem lögfest var árið 2008, hvílir á þeim siðferðislega grunni að öll börn eigi jafnan rétt til náms í heimaskóla. Óháð fötlun, félagslegri stöðu eða námsörðugleikum skal virðing og þátttaka vera leiðarljósið. En þegar skyggnst er bak við tjöldin blasir við önnur og dekkri mynd. Þrátt fyrir fögur fyrirheit stendur framkvæmdin á brauðfótum og kerfið hefur brugðist. Hindranirnar eru kerfislægar og djúpstæðar; þær kalla á róttæka uppstokkun, ekki plástra á opin sár.

Read More
Menntamál Friðþjófur Helgi Karlsson Menntamál Friðþjófur Helgi Karlsson

Íslenskan sem lykill að þátttöku: Ný sýn á tungumál og inngildingu

Íslenskt samfélag stendur á tímamótum. Fólksfjölgun síðustu ára hefur að stórum hluta verið drifin áfram af innflytjendum, og fjölbreytileikinn sem áður var jaðarfyrirbæri er í dag hluti af daglegu lífi, skólastarfi og atvinnulífi. Þessar breytingar kalla á nýja sýn. Sýn sem gerir ráð fyrir því að íslenskan sé ekki aðeins arfleifð heldur lifandi samskiptamál fjölbreyttrar þjóðar.

Meginmarkmið 3 í hvítbók stjórnvalda um málefni innflytjenda, sem lögð er fram til ársins 2038, markar umtalsverð þáttaskil í nálgun Íslands á tungumál, samfélag og inngildingu.

Read More
Menntamál Friðþjófur Helgi Karlsson Menntamál Friðþjófur Helgi Karlsson

Aðalnámskrá í rústum? Týndur áratugur í íslenskum grunnskólum

Á síðasta áratug hafa íslenskir grunnskólar glímt við stöðugar áskoranir og árangur nemenda í alþjóðlegum samanburði, svo sem PISA-könnunum, hefur dalað.

Þótt orsakir séu eflaust margþættar benda gögn afdráttarlaust í eina átt: Aðalnámskrá grunnskóla frá 2011/2013, sem kynnt var sem framsækin bylting í menntamálum, var í raun illa ígrunduð og vanbúin tilraun sem innleidd var með afgerandi stuðningsleysi af hálfu stjórnvalda. Afleiðingarnar eru óöryggi, aukið álag á kennara og ósamræmi milli skóla sem hefur bitnað á gæðum menntunar og námsárangri heillar kynslóðar.

Read More