Móttökudeildir: Brú til þátttöku – ekki aðskilnaður
Samfélagsgerðin á Íslandi hefur tekið stakkaskiptum á undanförnum árum. Fjölbreytileiki íslenskra grunnskóla hefur aukist hratt og veruleikinn í skólastofum landsins er annar en hann var fyrir aðeins áratug. Sífellt fleiri börn af erlendum uppruna setjast að hér á landi; sum leita skjóls undan stríði og ofsóknum, önnur flytja hingað með fjölskyldum sínum vegna atvinnutækifæra eða náms. Þessi breytti veruleiki er fagnaðarefni sem auðgar samfélag okkar en hann kallar jafnframt á skýr viðbrögð, faglega nálgun og raunhæf úrræði af hálfu skólakerfisins. Eitt mikilvægasta verkfærið sem við höfum til að mæta þessum áskorunum eru vel skipulagðar móttökudeildir.
Börn eiga ekki heima í varðhaldi – lög sem brjóta gegn mannréttindum barna
Áform stjórnvalda um að lögfesta heimild til að vista börn í brottfararstöð hafa vakið djúpar áhyggjur meðal mannréttindasamtaka. Frumvarpið, sem heimilar frelsissviptingu barna í allt að níu daga, væri fordæmalaust skref aftur á bak í íslenskum mannréttindum. Það myndi grafa undan þeirri sjálfsmynd Íslands sem mannúðlegs og réttláts samfélags.