Menntamál Friðþjófur Helgi Karlsson Menntamál Friðþjófur Helgi Karlsson

Hnignun námsárangurs á PISA prófinu: Spegill brotakennds menntakerfis?

Ísland hefur lengi baðað sig í dýrðarljóma norræna velferðarkerfisins og stært sig af skólakerfi sem á að vera frjálslynt, skapandi og öllum opið. Við höfum talið okkur trú um að við stöndum fremst meðal þjóða. En þegar tölurnar eru skoðaðar, þegar alþjóðlegur samanburður á borð við PISA er lagður á borðið, blasir við allt annar og dekkri veruleiki.

Niðurstöður PISA 2022 eru ekki bara „slæmar“; þær eru áfellisdómur. Íslenskir nemendur hafa dalað jafnt og þétt í lykilgreinum frá árinu 2003, einkum í lesskilningi og stærðfræði. Hnignunin er orðin kerfisbundin og dýpkar nú hraðar hér á landi en hjá nágrannaþjóðum okkar. Hvað veldur því að við erum að sigla menntakerfinu í strand? Svarið er hvorki einfalt né einhlítt. Það er samansafn af pólitísku aðgerðaleysi, misráðnum kerfisbreytingum og kennslufræðilegu stefnuleysi sem myndað hefur eitraðan kokteil fyrir íslenskt skólastarf.

Read More
Útlendingamál Friðþjófur Helgi Karlsson Útlendingamál Friðþjófur Helgi Karlsson

Tími ábyrgðar í útlendingamálum – ekki uppgjafar

Það eru engar nýjar fréttir að Ísland sé vinsælt land fyrir fólk sem leitar nýrra tækifæra. Okkar öfluga atvinnulíf, náttúruauðlindir, friðsælt samfélag og góða velferðarkerfi hafa laðað að fólk víða að úr heiminum. Það er í sjálfu sér ekki vandamál. En það sem er vandamál – og hefur verið það um nokkurt skeið – er að við höfum ekki haft stefnu. Við höfum verið með opið hús, en gleymt að leggja reglur fyrir gestina. Við höfum boðið fólk velkomið, en ekki undirbúið okkur sem samfélag.

Á síðustu árum hefur orðið gríðarleg fólksfjölgun á Íslandi. Frá árinu 2017 hefur íbúum landsins fjölgað um rúmlega 50.000, og um 68% af þeirri fjölgun hefur verið vegna erlendra ríkisborgara. Þetta er fimmtánfalt hraðari vöxtur en meðaltalið í Evrópu og næstum fjórfalt miðað við önnur Norðurlönd.

Read More