Tími ábyrgðar í útlendingamálum – ekki uppgjafar
Það eru engar nýjar fréttir að Ísland sé vinsælt land fyrir fólk sem leitar nýrra tækifæra. Okkar öfluga atvinnulíf, náttúruauðlindir, friðsælt samfélag og góða velferðarkerfi hafa laðað að fólk víða að úr heiminum. Það er í sjálfu sér ekki vandamál. En það sem er vandamál – og hefur verið það um nokkurt skeið – er að við höfum ekki haft stefnu. Við höfum verið með opið hús, en gleymt að leggja reglur fyrir gestina. Við höfum boðið fólk velkomið, en ekki undirbúið okkur sem samfélag.
Á síðustu árum hefur orðið gríðarleg fólksfjölgun á Íslandi. Frá árinu 2017 hefur íbúum landsins fjölgað um rúmlega 50.000, og um 68% af þeirri fjölgun hefur verið vegna erlendra ríkisborgara. Þetta er fimmtánfalt hraðari vöxtur en meðaltalið í Evrópu og næstum fjórfalt miðað við önnur Norðurlönd.